Atómið – dæmi og svör

1a. Hvað er frumefni og hve mörg eru þau?

Svar

Atóm af einni gerð eru kölluð frumefni. Til eru 118 mismunandi frumefni.

1b. Úr hvaða öreindum er atóm samsett og hver er hleðsla þeirra?

Svar

Atóm er samsett út róteindum sem eru plús hlaðnar, nifteindum sem eru óhlaðnar og rafeindum sem eru mínus hlaðnar. Róteindir og nifteindir eru í kjarna atóms á meðan að rafeindir svífa umhverfis kjarnann

2. Teiknið grunnbyggingu atóms? 

Svar

Picture

3. Hver er sætistalan fyrir eftirfarandi atóm a) Na  b) Cl og c) Ag ?

Svar

a) Sætistala Na er 11
b) Sætistala Cl er 17
c) Sætistala Ag er 47

4. Hvað er samsæta?

Svar

Samsætur eru atóm með sama fjölda róteinda en mismunandi fjölda nifteinda. Þ.e. frumefni af sömu gerð með mismunandi fjölda nifteinda.

5. Samsætuhlutfall klórs er 75,8% Cl-35 á móti 24,2% Cl-37. Hver er atómmassi klórs?

Svar

Picture

6. Hve margar róteindir, nifteindir og rafeindir er í Cl-37 samsætunni? Sýnidæmi.

Svar

Róteindafjöldi Cl = 17 róteindir

Rafeindafjöldi = Róteindafjöldi => 17 rafeindir

Massatala = 37. Nifteindir = 37 – 17 = 20 nifteindir

7. Hvaða samsæta hefur 20 róteindir og 24 nifteindir?

Svar

Picture

8. Hver eru undirhvolf atóma og hvað rúmar hvert þeirra margar rafeindir?

Svar

Undirhvolfin kallast s, p, d og f, þar sem s rúmar 2 rafeindir, p rúmar 6 rafeindir, d rúmar 10 rafeindir og f rúmar 14 rafeindir.

9. Hver er rafeindahýsing Fe atómsins. Sýnidæmi.

Svar

Picture

9b. Hvaða frumefni hafa eftirfarandi rafeindahýsingu?

Picture

Svar

 a) 11 rafeindir => Natríum (Na)   b) 26 rafeindir => Járn (Fe)   c) 37 rafeindir => Rúbidíum (Rb)

10. Hvað er sameiginlegt þeim frumefnum sem eru í sama flokki lotukerfisins?

Svar

Þau hafa öll sama magn rafeinda á sýnu ysta hvolfi (gildisrafeindir) sem gefur þeim sambærilega efnaeiginleika.

11. Hvaða jónir geta myndast úr eftirfarandi atómum. a) Na   b) Al   c) S   d) Br

Svar

a) Na myndar 1+ jón. b) Al myndar 3+ jón. c) S myndar 2- jón. d) Br myndar 1- jón.

12. Hvaða frumefni hafa eftirfarandi sætistölur?     a) 19     b) 43     c) 82

Svar

a) Kalíum  b) Teknesíum   c) Blý

13. Fyllið upp í eftirfarandi töflu

Picture

Svar

Picture